Verk nr.161 - Undína (Helga Steinvör Baldvinsdóttir).
Kvæði eptir Undínu. Með myndum. Undína (1858 - 1941 ) var frá Litlu-Ásgeirsá í Víðidal í Húnaþingi, dóttir Baldvins Helgasonar og Soffíu Jósafatsdóttur. Þau settust fyrst að í Rousseau í Muskoka í Ontario en síðar í Norður Dakota. Undína var tvígift, fyrri eiginmaðurinn var drykkfelldur og hún skildi við hann, sá síðari dó 1904.
Síðan bjó hún á vesturströndinni til dauðadags, síðustu árin í skjóli Sophiu dóttur sinnar. Undína orti mest fyrir og um aldamótin, en lítið eftir það. Hún vakti verðskuldaða athygli bókmenntamanna vestra. Kvæði hennar eru einföld og ljóðræn, mörg þeirra ættjarðarljóð. Bestu ljóð hennar eru dapurleg og rómantísk, birta rótleysistilfinningu landnemanna á látlausan hátt. Heildarútgáfa á ljóðum hennar kom út 1952. - Ljóð. - Reykjavík. Ísafoldarprentsmiðja, 1952. cm
Flokkur: Bækur
Uppboði lýkur 14.12.2025 klukkan 17:20
Verðmat: 4000

Boð frá 30542: Kr. 4.000.- 10.12.2025 20:55
Boð frá 27181: Annað jafn hátt boð fyrirliggjandi!
Boð frá 30542: Kr. 3.000.- 10.12.2025 20:55
Boð frá 27181: Kr. 2.000.- 10.12.2025 20:55
Boð frá 30542: Kr. 1.000.- 10.12.2025 14:07

Gott eintak í laglegu forlagsbandi.

Uppboðsskilmálar fyrir uppboð á vefnum:

Verkin eru boðin upp á vefuppboði hjá Fold uppboðshúsi ehf. og seljast við hamarshögg. Með því að senda inn boð í verkin samþykkir þú skilmála uppboðsins sem lesa má hér. Boðshafi skuldbindur sig án nokkurra undantekninga að standa við boðið.

Uppboðsgjald skv.uppboðsskilmálum Gallerís Foldar leggst ofan á hamarshöggsverð og einnig höfundarréttargjald á listmuni skv.lögum nr. 117/2005.

Ofan á hamarshögg bóka leggst 11% virðisaukaskattur ofan á uppboðsgjaldið.

Ofan á hamarshögg skrautmuna og silfurmuna leggst 24% virðisaukaskattur ofan á uppboðsgjaldið.

Boðshafi skuldbindur sig án undantekninga til að greiða ofangreind gjöld.

Falli verkið boðshafa í skaut skal ganga frá greiðslu innan tveggja daga frá uppboðsdegi. Greiði kaupandi ekki innan tilskilins tíma fyrir keypt verk, eða semji um greiðsluna, áskilur uppboðshaldari sér rétt til innheimtu skuldarinnar.

Öll verk eru seld í því ástandi sem þau eru og án ábyrgðar enda hefur boðshafi möguleika á að skoða verkin í uppboðssal fyrir uppboðið. Öll verk eru til afhendingar hjá Fold uppboðshúsi við Rauðarárstíg 12 - 14, 105 Reykjavík eða á þeim stað sem tilgreindur er í lýsingu við verkið.

Uppboðshaldarar og uppboðshúsið áskilja sér rétt til þess að breyta dagsetningu og tíma uppboðs telji þeir það nauðsynlegt vegna utan af komandi aðstæðna.

Framlenging á uppboðstíma
Ef boð berst þegar innan við þrjár (3) mínútur eru eftir af uppboðinu framlengist uppboðið um þrjár mínútur.