Verk nr.153 - Ýmsir höfundar.
Saman í gömlu bandi eru þessar bækur. - Rímur af Finnboga ramma. Kveðnar af Ásmundi Sigurðssyni árið 1879. Akureyri 1879. Prentaðar í prentsmiðju Norðanfara. B. M. Stephánsson. - Rímur af Geirarði og Elinborgu, kveðnar á Suðurlandi árið 1871 af Símoni Bjarnasyni Dalaskáldi. Útgefandi Stefán Sveinsson. Akureyri. Prentari Björn Jónsson. 1884. - Sneglu-Halli. Ýmisleg ljóðmæli eptir Símon Bjarnarson Dalaskáld. Akureyri. Prentað hjá Birni Jónssyni 1883. - Rímur.
Flokkur: Bækur
Uppboði lýkur 14.12.2025 klukkan 17:04
Verðmat: 45000


Allt eru þetta ágæt og allgóð eintök en bandið er lúð. Hér mætti gera úr þrjár fallegar bækur. Allt eru þetta fáséð rit.

Uppboðsskilmálar fyrir uppboð á vefnum:

Verkin eru boðin upp á vefuppboði hjá Fold uppboðshúsi ehf. og seljast við hamarshögg. Með því að senda inn boð í verkin samþykkir þú skilmála uppboðsins sem lesa má hér. Boðshafi skuldbindur sig án nokkurra undantekninga að standa við boðið.

Uppboðsgjald skv.uppboðsskilmálum Gallerís Foldar leggst ofan á hamarshöggsverð og einnig höfundarréttargjald á listmuni skv.lögum nr. 117/2005.

Ofan á hamarshögg bóka leggst 11% virðisaukaskattur ofan á uppboðsgjaldið.

Ofan á hamarshögg skrautmuna og silfurmuna leggst 24% virðisaukaskattur ofan á uppboðsgjaldið.

Boðshafi skuldbindur sig án undantekninga til að greiða ofangreind gjöld.

Falli verkið boðshafa í skaut skal ganga frá greiðslu innan tveggja daga frá uppboðsdegi. Greiði kaupandi ekki innan tilskilins tíma fyrir keypt verk, eða semji um greiðsluna, áskilur uppboðshaldari sér rétt til innheimtu skuldarinnar.

Öll verk eru seld í því ástandi sem þau eru og án ábyrgðar enda hefur boðshafi möguleika á að skoða verkin í uppboðssal fyrir uppboðið. Öll verk eru til afhendingar hjá Fold uppboðshúsi við Rauðarárstíg 12 - 14, 105 Reykjavík eða á þeim stað sem tilgreindur er í lýsingu við verkið.

Uppboðshaldarar og uppboðshúsið áskilja sér rétt til þess að breyta dagsetningu og tíma uppboðs telji þeir það nauðsynlegt vegna utan af komandi aðstæðna.

Framlenging á uppboðstíma
Ef boð berst þegar innan við þrjár (3) mínútur eru eftir af uppboðinu framlengist uppboðið um þrjár mínútur.