Hulda Hákon

Hulda Hákon fæddist í Reykjavík, bjó um tíma í Keflavík, og var í sveit á sumrin eins og mörg börn þegar hún var að alast upp um 1960. Hún hefur teiknað frá því að hún man eftir sér. Þeir sem sáu myndirnar hennar á leikskólanum Barónsborg þóttust vissir um að hún yrði myndlistarmaður.
Í barnaskóla fékk hún alltaf tíu í teikningu.

Hulda sótti myndlistarnámskeið fyrir börn í Myndlista- og handíðaskólanum og lærði líka að teikna módel í Myndlistaskóla Reykjavíkur á unglingsárunum. Það kom þess vegna engum á óvart að hún fór í myndlistarnám þegar hún var orðin stúdent.

Hulda Hákon útskrifaðist frá nýlistadeild Myndlista- og handíðaskóla Íslands árið 1981 og hélt síðan til náms í School of Visual Arts í New York þar sem hún útskrifaðist úr skúlptúrdeild árið 1983. Hulda hefur haldið fjölmargar einkasýningar; verk hennar hafa verið sýnd víða um heim og gildir þá einu hvort staðirnir séu fámennir eða fjölmennir: Tassilaaq á Grænlandi eða Chinese European Art Center í Xiamen í Kína. Hún hefur einnig tekið þátt í í fjölda samsýninga í Evrópu, Bandaríkjunum, Kanada og Ástralíu. Í ár mun hún meðal annars sýna í Art OBJECT, Art Modern Gallery á Miami í Bandaríkjunum. Hulda býr og starfar í Reykjavík en hún hefur verið með vinnustofur í Kína og Vestmannaeyjum.