Einar G. Baldvinsson (1919-2004)

Einar G. Baldvinsson var fæddur í Reykjavík 8. Desember 1919. Hann lést árið 2004.

Einar lærði myndlist í Handíða- og myndlistaskólanum árin 1942-45 og í Kunstakademiet í Kaupmannahöfn 1946-50. Hann starfaði sem listmálari í Reykjavík og kenndi einnig teikningu í skólum. Einar fór í námsferðir til Frakklands, Ítalíu, Hollands, Belgíu, Noregs, Grikk lands og Svíþjóðar. Hann hélt fjölda málverkasýninga og tók einnig þátt í samsýningum Félags íslenskra myndlistarmanna. Hann hélt sína fyrstu einkasýningu í Bogasal Þjóðminjasafnsins árið 1958. Einar hlaut starfslaun listamanna árið 1983.