Úr iðrum jarðar - skoðið sýninguna

Portraits of the Eruption - view online

Forsíða - Home
Listamenn - Artists
Uppboð - Auction
Sýningar
Forsalur - Hjalti Parelius
Hliðarsalur - Volcano Exhibition
Fréttir - News
Upplýsingar - Info
International visitors
Login


Skráðu þig í
Listaklúbbinn Fold






Sýningar Print Senda
Höfundur Jóhann   

Gallerí Fold hefur rekið sýningaraðstöðu í Reykjavík frá árinu 1994 og heldur að meðaltali 12 myndlistarsýningar á ári en hver sýning stendur yfir í rúmar tvær vikur. Yfirleitt er um einkasýningar að ræða en þó er hluti af sýningarhaldinu samsýningar.

Frítt er inn á allar sýningar.

Myndlistarsýningar og uppákomur tengdar þeim eru afar mikilvægur hluti af starfseminni og hefur Gallerí Fold fullan hug á að halda áfram að efla þann þátt og jafnframt að stuðla að auknum áhuga almennings á myndlist með því að auka fjölbreytileika í vali á listamönnum.

Gallerí Fold hefur tekið þátt í Menningarnótt Reykjavíkur frá upphafi. Meðal fastra liða í sýningarhaldi gallerísins eru sýningarnar á Menningarnótt sem eru uppbyggðar þannig að a.m.k. ein sýning er tileinkuð látnum listamanni og er sú sýning úr einkasöfnum, en aðrar sýningar eru á verkum samtíma listamanna.

Jóla- og sumarsýningar gallerísins eru samsýningar listamanna sem galleríið er umboðsmaður fyrir og hafa þær ávallt notið mikilla vinsælda meðal almennings. Galleríið heldur einnig reglulega sýningar þar sem verkin eru ekki til sölu og því engin hagnaðarvon heldur er markmiðið eingöngu fræðsla og ánægja fyrir listunnenda og eru þær jafnan úr einkasöfnum. Árlegar sýningar á verkum gömlu meistaranna hafa ávallt verið vinsælar og mikilvægur þáttur í sýningarflóru Reykjavíkurborgar. Starfsmenn taka einnig reglulega á móti hópum myndlistarnema bæði á framhalds- og á háskólastigi í fræðsluskyni.

Gallerí Fold hefur í gegnum tíðina átt samstarf við hina ýmsu aðila vegna sýningarhalds og má meðal annars nefna myndlistarsýningu í Washington D.C. í húsakynnum IMF (Alþjóða gjladeyrissjóðnum) sem haldin var árið 2000 í samstarfi við Utanríkisráðuneytið. Einnig má nefna sýningu á verkum Andy Warhol sem haldin var á menningarnótt árið 2003 þar sem sýnd voru verk úr einkasafni Richard Weisman. Sýningin sló öll aðsóknarmet gallerísins en talið er að um 10.000 manns hafi séð sýninguna. Mikla athygli vakti sýning á verkum Louisu Matthíasdóttur árið 2000 en hún var haldin í samvinnu við ættingja listakonunnar. Aðsókn á sýninguna var mjög góð eða um 5-6000 manns. Sýningar á teikningum Halldórs Péturssonar hafa einnig verið haldnar í samstarfi við erfingja listamannsins.

Eftirfarandi er listi yfir sýningar hjá Galleríi Fold í tímaröð frá árinu 2006.

2008

  • febrúar, Sara Vilbergsdóttir
  • maí – Pétur Gauturmaí – Jóhanna Hreinsdóttir og Freydís Kristjánsdóttir
  • ágúst, Menningarnótt – Karl Kvaran (úr einkasafni), Lína Rut Wilberg og Anne Pesce frá Frakklandi
  • september, Lilja Kristjánsdóttir
  • október, Hallur Karl Hinriksson, Haukur Dór og Hulda Vilhjálmsdóttir
  • nóvember, Bárdur Jákupssen frá Færeyjum
  • desember, jólasýning, samsýning

2007

febrúar – Haukur Dór
mars – Hallur Karl og Abba (Aðalbjörg Þóraðardóttir)
apríl – Daði Guðbjörnsson
maí – Guðrún Öyahals
júní – ágúst samsýning/sumarsýning Gallerís Foldar
ágúst, Menningarnótt – Kristján Davíðsson, Haraldur Bilson og teikningar Halldórs Péturssonar.
september – Kjartan Guðjónsson
september – Þorsteinn Helgason
október – Bragi Ásgeirsson
nóvember – Sigurjón Jóhannsson
desember – Samsýning og Lína Rut – jólasýningar

2006

febrúar – Hulda Vilhjálmsdóttir febrúar – Sveinbjörg Hallgrímsdóttir
mars – Lilja Kristjánsdóttir apríl – Tryggvi Ólafsson maí – Bragi Ásgeirsson júní – ágúst samsýning/sumarsýning Gallerís Foldar ágúst, Menningarnótt – Kjartan Guðjónsson og Þorvaldur Skúlason september – Magnús Helgason og Halldór Baldursson október – Soffía Sæmundsdóttir október – Einar Hákonarson desember – samsýning/jólasýning Gallerís Foldar

Galleríið hefur haldið sýningar á verkum ungra listamanna og tóku eftirfarandi myndlistarmenn þátt í sýningarröðinni Ungir Myndlistarmenn árin 2006 og 2007; Hulda Vilhjálmsdóttir, Lilja Kristjánsdóttir, Magnús Helgason, Hallur Karl Hinriksson og Kolbrá Bragadóttir.

GALLERI FOLD LISTMUNASALA | RAUÐARÁRSTÍG 14-16 -> S. 551-0400