|
Gallerí Fold býður upp á aðstoð sérfræðinga við mat á listaverkum sem hafa langa reynslu á verðmati íslenskra listaverka.
Verðmat í Galleríi Fold
Þú getur komið hvenær sem er með verk til okkar í Gallerí Fold við Rauðarárstíg og fengið ókeypis lauslega verðhugmynd. Einnig getur þú skilið verk eftir til að fá fullkomið skriflegt verðmat og gildir þá verðskrá gallerísins.
Gátlisti fyrir þá sem eru að undirbúa ósk um verðmat: Smelltu hér
Nánar um verðmat Gallerís Foldar.
Verðmat á netinu
Hér á heimasíðunni getur þú sent inn ósk um verðmat á einstökum verkum.
Nánar um verðmat á netinu.
Verðmat í heimahúsum eða fyrirtækjum
Gallerí Fold býður upp á að verðmeta listaverkaeign einstaklinga og fyrirtækja. Starfsfólk okkar mun koma á staðinn og skrásetja listaverkin og ljósmynda. Gallerí Fold skilar þér síðan fullkomnu verðmati. Verðskrá gallerísins gildir um verðmat í heimahúsum og fyrirtækjum.
Nánar um verðmat í heimahúsum eða fyrirtækjum.
Verðskrá fyrir verðmat. |