|
Gallerí Fold
Listmunasala, uppboðshús og sýningarsalir
Gallerí Fold er leiðandi í sýningar- og uppboðshaldi á Íslandi. Galleríiið var stofnað árið 1990 en hefur verið í eigu núverandi eigenda frá 1992. Árið 1994 flutti Galleríið starfsemi sína í eigið húsnæði að Rauðarárstíg 14 þar sem það hefur náð að vaxa og dafna. Galleríið er nú í 600 m2 húsnæði og hefur yfir 5 sýningarsölum að ráða en salirnir eru frá 30 – 110 m2. Að jafnaði býður Gallerí Fold verk um 60 íslenskra úrvalslistamanna. Auk þess tekur galleríið verk í endursölu frá einstaklingum og fyrirtækjum, bæði í beina sölu og á uppboð. Því er ávallt gott úrval fjölbreyttra verka á boðstólnum hjá okkur.
Hvergi meira úrval af íslenskri myndlist
Listmunauppboð í hverjum mánuði
Gallerí Fold stendur fyrir listmunauppboðum mánaðarlega yfir vetrartímann sem alla jafna eru vel sótt. Boðin eru upp um eitt hundrað verk hverju sinni. Uppboðsskrá má nálgast í galleríinu eða á myndlist.is. Nýjung í starfseminni eru uppboð á netinu á vefnum uppbod.is. Þar er hægt að bjóða í verk sem eingöngu eru til sölu á netinu eða leggja inn forboð fyrir verk á stærri uppboðum.
Sérfræðingar í verðmati
Gallerí Fold tekur að sér að verðmeta verk fyrir einstaklinga, fyrirtæki, tryggingarfélög og stofnanir. Til grundvallar verðmatinu liggur mikil þekking á íslenskum listamarkaði og hin íslenska verðvísitala listaverka sem byggist á gögnum um öll listaverkauppboð sem hafa farið fram á Íslandi og galleríið heldur utan um.
Íslensk list um heim allan
Í hverri viku heimsækja okkur tugir erlendra gesta sem vilja kynna sér það helsta sem er að gerast í íslensku listalífi. Við pökkum verkum til flutnings og sendum um heim allan.
Fullkomið innrömmunarverkstæði
Til að geta veitt viðskiptavinum okkar enn betri þjónustu stofnaði galleríið rammaverkstæði árið 2001. Verkstæðið býr yfir fullkomnasta búnaði sem völ er á og rammar inn bæði fyrir listamenn gallerísins sem viðskiptavini þess.
|