Úr iðrum jarðar - skoðið sýninguna

Portraits of the Eruption - view online

Forsíða - Home
Listamenn - Artists
Uppboð - Auction
Sýningar
Forsalur - Hjalti Parelius
Hliðarsalur - Volcano Exhibition
Fréttir - News
Upplýsingar - Info
International visitors
Login


Skráðu þig í
Listaklúbbinn Fold






Uppboð - Auction
Uppboðsskilmálar Print Senda
Höfundur Fold   

Verkin eru seld í því ástandi sem þau eru í þegar þau eru slegin hæstbjóðanda.

Kaupandi hefur haft möguleika á að kynna sér ástand verkanna á forsýningu. Gallar sem kunna að vera á seldu verki eru því kaupanda kunnir við kaupin og hvorki á ábyrgð uppboðshaldara né seljanda.

Komi upp efasemdir um hver hafi átt hæsta boð þegar verk er slegið, eða fleiri en einn reynast hafa verið með hæsta boð, ákveður uppboðshaldari hvort viðkomandi verk verður boðið upp á ný.

Ofan á slegið verð leggst 15% uppboðsgjald og einnig höfundarréttargjald skv. lögum nr. 117/2005. Höfundarréttargjaldið skal vera í íslenskum krónum og reiknast þannig:

1. 10% af þeim hluta söluverðs sem samsvarar að hámarki 3.000 evrum;
2. 5% af þeim hluta söluverðs sem samsvarar 3.000,01 evru upp í 50.000 evrur;
3. 3% af þeim hluta söluverðs sem samsvarar 50.000,01 evru upp í 200.000 evrur;
4. 1% af þeim hluta söluverðs sem samsvarar 200.000,01 evru upp í 350.000 evrur;
5. 0,5% af þeim hluta söluverðs sem samsvarar 350.000,01 evru upp í 500.000 evrur;
6. 0,25% af þeim hluta söluverðs sem samsvarar fjárhæð umfram 500.000 evrur.

Gjaldið skal þó aldrei nema hærri fjárhæð en sem samsvarar 12.500 evrum.
Gengið skal miðað við sölugengi á söludegi.

Greiðsla fyrir keypt verk skal innt af hendi í lok uppboðsins, eða eigi síðar en tveimur dögum síðar.

Greiði kaupandi ekki innan tilskilins tíma fyrir keypt verk, eða semji um greiðsluna, áskilur uppboðshaldari sér rétt til innheimtu skuldarinnar.

Jóhann Ágúst Hansen og Tryggvi P. Friðriksson bjóða verkin upp

Að bjóða í verk Print Senda
Höfundur Fold   

FYRIRFRAMBOÐ
Hægt er að gera fyrirframboð í verkin. Gallerí Fold getur annast boð fyrir þá sem þess óska. Vinsamlega fáið hjá okkur þar til gert eyðublað ef þið hafið áhuga.

BOÐIÐ Í GEGN UM SÍMA   Hægt er að bjóða í verkin símleiðis. Símar á uppboðsstað: 691 0400, 615 0400, 845 0450 og 896 6511. Uppboðshaldari ábyrgist ekki að hægt sé að svara öllum fyrirspurnum í síma.

HÆKKUN BOÐA
   Ekki eru samþykkt boð undir eitt þúsund krónum. Að jafnaði er gert ráð fyrir að boð hækki um a.m.k. 10%. Uppboðshaldari áskilur sér rétt til að stýra hækkun boða á þann hátt sem hann telur réttan hverju sinni. Ennfremur að synja boðum sem ná ekki því lágmarki sem hann setur.

GALLERI FOLD LISTMUNASALA | RAUÐARÁRSTÍG 14-16 -> S. 551-0400