Úr iðrum jarðar - skoðið sýninguna

Portraits of the Eruption - view online

Forsíða - Home
Listamenn - Artists
Uppboð - Auction
Sýningar
Forsalur - Hjalti Parelius
Hliðarsalur - Volcano Exhibition
Fréttir - News
Upplýsingar - Info
International visitors
Login


Skráðu þig í
Listaklúbbinn Fold






Fréttir - News
Ísland í dag - Hjalti Parelius Print Senda
Höfundur Jóhann   

Ísland í dag
Hjalti Parelius
21. ágúst - 5. september 2010

Listamannaspjall
laugardag, 4. september 2010 kl. 14 - 16
sunnudag, 5. september kl. 14 - 16

Hjalti Parelius - Ísland í dagHjalti Parelius er fæddur 1979 í Reykjavík. Hann stundaði nám á listnámsbraut við Fjölbrautaskólann í Breiðholti og síðar við Danmarks Designskole.

Hjalti hefur unnið sem grafískur hönnuður auk þess að leggja stund á málaralistina. Þetta er önnur einkasýning Hjalta en sýningin hans á Ljósanótt í Reykjanesbæ 2009 fékk ágætar viðtökur.

Um verk sín segir Hjalti að hann líti á sig sem pistlahöfund sem málar. Umfjöllunarefnið er oft fréttir líðandi stundar og önnur mál sem hann vill segja álit sitt á. Það álit sé ekki endilega hið eina rétta, satt eða óhlutdrægt. “Ég fæ innblástur frá mörgum og þar er Erró efstur á lista ásamt Roy Lichtenstein, Andy Warhol, Övind Fahlström og fleiri popp listamönnum ásamt því að leita að innblástri í mínu eigin samfélagi”. 

 

Skoða sýninguna
View exhibition

Dagsrká Menningarnótt 2010 Print Senda
Höfundur Jóhann   
Menningarnótt 2010 í Galleríi Fold hefst kl. 13

Hjalti Parelius 

kl. 13 - 22

Ísland í dag

Hjalti Parelius

Laugardaginn 21. ágúst verður opnuð sýning á verkum Hjalta Pareliusar  Forsal Gallerís Foldar. Sýningin er hluti af dagskrá Menningarnætur og stendur til 5. september. 

Þorvaldur Skúlason 

kl. 13 - 22

Sjávarsýn

 Sýning á verkum úr safni Braga Guðlaugssonar dúklagningameistara. Að þessu sinni valdi Bragi verk tengd sjónum úr safni sínu. Bragi er löngu landsþekktur safnari. Sýningin stendur til 29. ágúst.

Jóhann Ágúst Hansen 

kl. 13 - 22

Úr iðrum jarðar

Samsýning 23 ljósmyndara í Galleríi Fold

 Yrkisefni þeirra eru náttúruhamfarirnar og eldgosin á Fimmvörðuhálsi og Eyjafjallajökli. Á sýningunni eru margar þekktar ljósmyndir sem birst hafa í stærstu fjölmiðlum um hei allann auk annarra sem koma fyrir sjónir almennings í fyrsta skipti. Trúlega hafa aldre verið teknar eins frábærar myndir af eldgosum hér á landi.

Soffía Sæmundsdóttir 

kl. 13 - 22

Hvaða saga er í myndinni?

 Leikur fyrir alla

 Verk eftir Soffíu Sæmundssdóttur hangir uppi  galleríinu. Finndu myndina og skrifaðu niður titi eða litla frásögn um hvað þér finnst listakonan sé að segja með verkinu. Listakonan velur úr eina sögu sem henni finnst best. Í verðlaun er lítið verk eftir Soffíu.

kl. 13 - 16
kl. 16 - 19
kl. 19 - 21.30

Ratleikur fyrir börn og fullorðna

Leikurinn felst í að finna níu listaverk sem sýnd eru í galleríinu. Hverju þeirra fylgir lítil frásögn og bókstafur sem er hluti af orð sem gestir eiga að finna út. Dregið er úr réttum lausnum og heppnir þátttakendur fá listaverkabækur í verðlaun.

kl. 13 - 19

Barnaland

Mikið fjör fyrir yngri börnin. Hoppukastali og veitingar. Upprennandilistamenn – börnin teikna eldgosamyndir. Fyrirmyndirnar eru ljósmyndir á sýningunn Úr iðrum jarðar.

kl.13–14 • kl. 15.30–18 • kl.19.30–21.30

Bráðlifandi músik

Jóhann Fr. Álfþórsson leikur létt lög fyrir gesti og gangandi.

Kl. 13.30 og svo á 30 mínútna fresti til 21.30

Listahapp

Allir gestir fá happadrættismiða. Dregið verður á 30 mínútna fresti, alls 17 sinnum. Dregið verður þangað til vinningar ganga út.
Vinningar eru listmunir og listaverkabækur.

Opið til kl. 22 á Menningarnótt

Lokað sunnudag



Neistinn fær 40.000 krónur Print Senda
Höfundur Jóhann   

Jóhann Ágúst Hansen afhendir Neistanum féðGallerí Fold afhenti í dag Neistanum, styrktarfélagi hjartveikra barna, 40.000 krónur en það er söluandvirði verka eftir nýsjálenska listamanninn Shannon Novak.

Verkið er hluti af sýningu sem hófst samtímis um allan heim þar sem verk Shannon voru sýnd í mismunandi galleríinum. Sýning bar heitið Sound Fragments eða hljóðbrot.

Söluágóði listaverkanna rann óskiptur til góðgerðamála í hverju landi og borg fyrir sig.

Fyrsti áfangi sýningarinnar hófst í einu galleríi (Sanderson Contemporary Art) í Auckland í Nýja Sjálandi þann 11. mars.
Annar áfangi sýningarinnar var settur upp í á landsvísu í Nýja Sjálandi og hófst þann 21. mars.
Þriðji og síðasti áfangi sýningarinnar hófst 6. apríl þegar verk Shannon voru sett upp í galleríum víða um heim, m.a. í Belgíu, Nígeríu, Ítalíu, Bretlandi, Bandaríkjunum, Dubai, Ástralíu og Íslandi.

Sound Fragments er alþjóðlegt listaverkefni listamannsins Shannon Novak þar sem hann kannar samhengið á milli lita, hljóðs og tilfinninga - könnun á hljóðbrotum sem springa út á við frá ákveðnum upphafspunkti. Núna er þessi upphafspunktur tónlistamaður, en frá honum streyma hljóðbrot sem búin eru til með tólf tónum eða hálftónum. Í gegnum einstaka litablöndun, geomatrísk form og sterka liti, afhjúpar sýningin hráa og einfalda fegurð hljóðbrotanna.

Elsta landslagsmálverkið frá Íslandi boðið upp Print Senda
Höfundur Jóhann   

Johann Christian M. EzdorfMálverk eftir Johann Christian M. Ezdorf (1801 Pößneck – 1851 München) verður boðið upp næstkomandi mánudag í Galleríi Fold við Rauðarárstíg.

Ezdorf var fæddur í bænum Pößneck nálægt Dresden í Þýskalandi 1801. Hann lærði í Munchen listaakademíunni og fór í margar námsferðir til Norðurlandanna. Fyrstu námsferðina fór hann 1821 til Hamborgar, Kaupmannahafnar og Noregs. Önnur ferð hans var til Íslands 1827 en í þeirri ferð málaði hann þó nokkrar myndir.

Þessi verk eru elstu landslagsmálverk af Íslandi sem við vitum um og eitt þeirra er nú er boðið upp í Galleríi Fold. Verkið er málað 1830 og merkt í neðra hægra horninu. Málverkið er í ágætu ástandi þrátt fyrir aldur þess og sýnir Reynisfjall og Reynisdranga úr austri. Það er 18x28 cm.

Tvö önnur verk frá ferð Ezdorf um Ísland hafa skotið upp kollinum á uppboðum í Þýskalandi, annað þeirra einnig frá Reynisdröngum en hitt verkið málaði Ezdorf við Gatklett á Snæfellsnesi.

Úr iðrum jarðar Print Senda
Höfundur Jóhann   

Sigursteinn Baldursson

English version below

Samsýningin 23 ljósmyndara í Galleríi Fold við Rauðarárstíg.

Yrkisefni þeirra eru náttúruhamfarirnar og eldgosin á Fimmvörðuhálsi og Eyjafjallajökli. Eldgosin hafa boðið góðum ljósmyndurum uppá ótrúleg tækifæri og á sýningunni eru margar þekktar ljósmyndir sem birst hafa í stærstu fjölmiðlum um heim allann auk annarra sem koma nú fyrir sjónir almennings í fyrsta skipti. Trúlega hafa aldrei verið teknar eins frábærar myndir af eldgosum hér á landi.

Sýningin nefnist Úr iðrum jarðar.

Ljósmyndarnir koma úr ýmsum áttum sem nálgast myndefni sitt með ólíkum hætti en sameinast í áhuga sínum á náttúru landins og hinum mannlega þætti sem birtist í baráttu fólks við náttúruröflin.

Þetta er lifandi sýning sem stendur í allt sumar og munu nýjar myndir berast ef breytingar verða á gosinu eða önnur gos eiga sér stað.

Skoða sýningunna



Jóhann Ágúst HansenThe Eyjafjallajökull glacier is one of the smaller glaciers in Iceland. It is situated nearby a beautiful hiking area on the south coast where thousands of people camp and enjoy nature during the summer. Just next to it a another much bigger volcano, Katla, which is covered by the glacier Mýrdalsjökull (yes, another hard to pronounce name).

The first fissure erupted between these two glaciers, Eyjafjallajökull  and Mýrdalsjökull. In order to get there you have to drive in super jeeps or snowmobiles over the glacier Mýrdalsjökull up to 1450 meters over see lavel. It is a trip that takes about five hours.

Beginning on 14 April 2010, the eruption entered a second phase and created an ash cloud that led to the closure of most of Europe's airspace from 15 April until 20 April 2010. Consequently, a very high proportion of flights within, to, and from Europe were cancelled, creating the highest level of air travel disruption since the Second World War.

The volcanic eruptions are a great photo opportunity and many photographers from around the world are traveling to Iceland to capture it. Art Gallery Fold will open an exhibition with photographs from 23 photographers next Saturday (May 15th). 

The exhibition will last all summer.


Nánar...
Sound Fragments Print Senda
Höfundur Jóhann   

Shannon NovakÍ dag, 6. apríl, hefst sýning í Galleríi Fold á verki eftir Shannon Novak. Verkið er hluti af sýningu sem hefst samtímis um allan heim þar sem verk Shannon eru sýnd í mismunandi galleríinum. Sýning ber heitið Sound Fragments eða hljóðbrot.

Söluágóði listaverkanna rennur óskiptur til góðgerðamála í hverju landi og borg fyrir sig. Gallerí Fold mun styrkja Neistann, styrktarfélag hjartveikra barna.

Fyrsti áfangi sýningarinnar hófst í einu galleríi (Sanderson Contemporary Art) í Auckland í Nýja Sjálandi þann 11. mars.
Annar áfangi sýningarinnar var settur upp í á landsvísu í Nýja Sjálandi og hófst þann 21. mars.
Þriðji og síðasti áfangi sýningarinnar hefst í dag, 6. apríl, þegar verk Shannon eru sett upp í galleríum víða um heim, m.a. í Belgíu, Nígeríu, Ítalíu, Bretlandi, Bandaríkjunum, Dubai, Ástralíu og Íslandi.

Sound Fragments er alþjóðlegt listaverkefni listamannsins Shannon Novak þar sem hann kannar samhengið á milli lita, hljóðs og tilfinninga - könnun á hljóðbrotum sem springa út á við frá ákveðnum upphafspunkti. Núna er þessi upphafspunktur tónlistamaður, en frá honum streyma hljóðbrot sem búin eru til með tólf tónum eða hálftónum. Í gegnum einstaka litablöndun, geomatrísk form og sterka liti, afhjúpar sýningin hráa og einfalda fegurð hljóðbrotanna.

Sýningunni lýkur í öllum galleríunum þann 2. maí.

Shannon Novak er ungur listamaður frá Auckland í Nýja Sjálandi. Hann hefur helgað sig strangflatar abstrakt málverki þar sem hann notar strangflatarformin til að túlka og kanna sambandið á milli hljóðs, lita og tilfinninga. Könnun hans á þessu sambandi hófst þegar hann lærði klassíska tónlist á unga aldri á píanó og síðar þegar hann starfaði sem tónlistarmaður og tónlistarhöfundur. Shannon nam við Massey University og útskrifaðist þaðan með meistaragráðu.

Morgunblaðið, 7. apríl 2010

"Hljóðbrot um heim allan
Verk eftir nýsjálenskan listamann í Fold

Í GÆR hófst sýning í Galleríi Fold verki eftir nýsjálenska listamannin Shannon Novak, en verkið e hluti af sýningunni Sound Fragments eða hljóðbrot, sem hefs samtímis um allan heim.Fyrsti áfangi sýningarinnar hófst í Sanderson Contemporary Ar galleríinu í Auckland 11. mars sl. annar áfanginn var settur upp  landsvísu í Nýja-Sjálandi 21. mars en í þriðja og síðasta áfanga sýningarinna eru verk Novaks settupp í galleríum víða um heim, m.a. í Belgíu, Nígeríu, Ítalíu, Bretlandi Bandaríkjunum, Dubai, Ástralíu o Íslandi. Sýningunni lýkur í öllu galleríunum 2. maí og söluágóð listaverkanna rennur til góðgerðamál í hverju landi.Í Sound Fragments kannar Shannon Novak samhengið á milli lita hljóðs og tilfinninga í strangflatarabstraktmálverki.Frekari upplýsingar um verkefnið er að finna  vefsetri þess, sites.google.com/site/soundfragments/."

Næsta listmunauppboð í apríl Print Senda
Höfundur Jóhann   

Næsta listmunauppboð verður haldið í apríl.

Nú eru síðustu forvöð að koma inn verkum á listmunauppboðið.

Áhugasamir vinsamlegast hafið samband í síma 551-0400, 896-6511 (Tryggvi) eða 845-0450 (Jóhann).

Einnig er hægt að koma með verkin beint í Gallerí Fold við Rauðarárstíg (sjá opnunartíma).

Listamannaspjall í dag Print Senda
Höfundur Jóhann   

Hallur Karl HinrikssonListamannaspjall í dag kl. 14 - 16.

Hallur Karl Hinriksson ræðir í dag kl. 14 - 16 við gesti gallerísins um list sína og sýninguna sem nú stendur yfir í Hliðarsalnum.

Allir velkomnir.

Tvær sýningar í Galleríi Fold Print Senda
Höfundur Jóhann   
Laugardaginn 13. mars 2010 kl. 15 opna
Hallur Karl Hinriksson og Hrafnhildur Inga Sigurðardóttir
sýningar sínar í Galleríi Fold við Rauðarárstíg.
Sýningarnar standa báðar til 28. mars.

Allir velkomnir.


Hallur Karl Hinriksson 

Hallur Karl Hinriksson

 

Hallur Karl Hinriksson er fæddur árið 1981 og ólst upp á Selfossi. Hann sótti nám til École supérieure des beaux-arts de Cornouaille listaháskólans í Quimper á Bretaníuskaga í Frakklandi. Þaðan hlaut hann DNAP (diplôme national d'arts plastiques) gráðu árið 2005, að loknu þriggja ára námi. Þetta er sjötta einkasýning Halls og sú þriðja í Galleríi Fold.

Sýningin inniheldur um 20 abstrakt olíumálverk, öll gerð á Selfossi í vetur. Sýningin einkennist af myndaröðum eða seríum, þ.e. tveimur, þremur og uppí níu myndum af sama, eða svipuðum mótífum. Þær styðja hver aðra og tala með beinum hætti saman, gegnum liti og hrynjanda. Myndirnar eru gerðar á olíupappír, með aðferðum sem minna á grafík, sem sagt steinþrykk eða silkiprent. Endurtekið litaval og stýrilínur skapa líkindi á milli mynda innan hverrar seríu en um leið eru þær ólíkar á sama náttúrulega hátt og engin tvö laufblöð, engir tveir steinar og engir tveir jöklar eru eins.

Litameðferðin og endurtekningin gefa til kynna tilvísanir í kyrrmyndir úr rafrænum myndmiðlum. Að ramma þessi olíuverk inn og setja undir gler eykur enn á þessa tilfinningu. Með þessum hætti gerir Hallur Karl áhrif nútímamiðla sýnileg í nálgun sinni á klassískt fag olíumálverksins. 

Skoða listaverk eftir Hall Karl


Hrafnhildur Inga Sigurðardóttir
 

 Hrafnhildur Inga Sigurðardóttir

 

Hrafnhildur Inga Sigurðardóttir er fædd að Vestur-Sámsstöðum í Fljótshlíðog ólst þar upp.  Hún stundaði myndlistarnám við Myndlistaskóla Reykjavíkur 1978 og 1979, Myndlista og handíðaskóla Íslands, nú Listaháskóla Íslands,1980-1984 og lauk þaðan prófi í grafískri hönnun. Árin 1999 og 2000 bætti hún við sig námi í olíumálun í Myndlistarskóla Kópavogs. 

Þetta er níunda einkasýning Hrafnhildar en sú fyrsta í Galleríi Fold. Hún hefur ennfremur tekið þátt í fjölda samsýninga bæði hér á landi en einnig víða erlendis, þar á meðal í Vilnius, Barcelona og New York.

Skoða listaverk eftir Hrafnhildi




Wolfgang Tiemann sýnir í Galleríi Fold Print Senda
Höfundur Jóhann   
Wolfgang Tiemann

Wolfgang Tiemann 

Wolfgang Tiemann

Wolfgang Tiemann 

Wolfgang Tiemann 

 

 

 

Wolfgang Tiemann er fæddur 1952 í Eickhorst, Kreis Minden í Þýskalandi.
Wolfgang stundaði listnám við Fachhochschule í Hannover og fór síðan til náms við Kunsthochschule Braunsweig þar sem hann lauk meistaranámi 1982.
Frá 1975 hefur hann farið í margar námsferðir til Kína, Sýrlands, Hong Kong, Tælands, Nepal, Ítalíu og Grikklands.
Wolfgang hefur haldið fjölda sýninga víða um heima meðal annars í heimalandi sínu Þýskalandi, Úkraínu, Ítalíu, Rússlandi, Hollandi, Kúbu, Spáni, Úsbekistan, Kína og Sýrlandi.
Sýningin er hluti af sýningarröð sem hófst í Hannover í Þýskalandi 12. mars s.l. og frá Íslandi fer sýningin til Sýrlands.

Listamaðurinn segir um sýninguna sína. "Á ótryggu landi fljótum við í gegn um lífið og virðum fyrir okkur landslagið - bæði að innan og utan. Landslagsmyndir eiga hug listamannsins Wolfgang Tiemann. Myndirnar sækja á hann frá ýmsum áttum, frá Evrópu, Mið- Austurlöndum og Karabíahafinu. Svipmikil pensilför og ákveðin meðferð sterkra lita sýna vel samspil sjávar, lands og ljóss. Augnablikið sem listamaðurinn fangar sýnir vel andstæða þætti landsins þar sem við getum séð skilin á milli jarðarinnar sem við stöndum á og hins fljótandi landslags í fjarska".


Sýningin stendur til 2. maí. 

"In a steady flow", grein eftir Carsten Ahrens á ensku.

 

Viðtal  Annette Roggatz við Wolfgang Tiemann á ensku.



 

Wolfgang Tiemann

Opening reception
Saturday April 17th,
3 p.m. to 5 p.m.

Wolfgang Tiemann is born 1952 in Eickhorst, Kreis Minden, Germany.

Mr. Tiemann studied at Fachhochschule Hanover and later at Kunsthochschule Braunsweig where he finished his master degree in 1982.

He has gone regularly on a study trips from 1975 to China, Syria, Hong Kong, Thailand, Nepal, Italy and Greece.

Mr. Tiemann has travelled the world with his exhibitions and displayed his work in Germany, Ukraine, Italy, Russia, The Netherlands, Cuba, Spain, Uzbekistan, China and Syria.

The Floating Land exhibition at Art Gallery Fold is the second in a series of exhibitions. The first started in Hanover, Germany and from Iceland it will travel to Syria.

The exhibition will end May 2nd

 

 




<< Byrjun < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>

Niðurstöður 1 - 10 af 231
GALLERI FOLD LISTMUNASALA | RAUÐARÁRSTÍG 14-16 -> S. 551-0400